Djúpahraun í landi Miðengis. Glæsilegt 113,3 fm sumarhús í byggingu.Fasteignaland kynnir: Sumarhús í byggingu við Djúpahraun 21 í landi Miðengis. Um er ræða 113,3 fm hús á steyptri plötu með gólfhita. Húsið verður afhent fullbúið að utan, klætt með litaðri báru, ál/tré gluggum og hurðum. Frágangi á sólpalli lokið um 100 fm. Rotþró komin, rafmagn ásamt köldu vatni. Heitt vatn (neysluvatn) verður í gegnum varmaskipti. Gólfhiti tengur við hitatúpu. Að innan, fullfrágengið með gólfefnum og innréttingum. Áætluð verklok um þrír mánuðir.
Lýsing á eign: Samkvæmt teikningum er gert ráð fyrir forstofu, þremur herbergjum. Inn af hjónaherbergi verður fataherbergi með útgengi út á sólpall. Tvö baðherbergi. Stofa og eldhús í sama rými með góðri lofhæð með útgengi út á sólpall. Geymsla sem gengið verður inn í af sólpalli.
Lóðin er 7.400 fm eignarlóð með glæsilegu útsýni, góðri aðkomu og bílastæði.
Þetta svæði er lokað með rafmagnshliði (símahlið).
Stutt er til þekktra staða á Suðurlandi, Skálholts, Þingvalla, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Kersins. Stutt er í veiði, sundlaug, golfvöll, íþróttavöll og fallegar gönguleiðir. Akstur frá Reykjavík ca. 50 mínútur
Upplýsingar gefa: Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali, s. 893 1485, netfang:
[email protected]Árni Björn Erlingsson, löggiltur fasteignasali, s. 898-0508, netfang:
[email protected]Björgvin Þór Rúnarsson, löggiltur fasteignasali, s. 855-1544, netfang:
[email protected]Vilhjálmur Bjarnason, löggiltur fasteignasali, s. 822-8183, netfang:
[email protected]