Flatir, Skeiða-og Gnúpverjahreppi við Árnes.Fasteignaland kynnir: Sumarhús, Flatir inn á skipulögðu sumarhúsasvæði við Árnes í Skeiða-og Gnúpverjahreppi. Um er að ræða 61,9 fm sumarhús ásamt ca. 6 fm geymslu/sturta. Auk þess er ca. 4 fm geymsla undir sólpalli. Í þessu húsi er hitaveita og lokað ofnakerfi. Stór sólpallur og heitur pottur. Í þessu húsi er ljósleiðaratenging og því gott netsamband.
Lýsing á eign: Forstofa með flísaparketi á gólfi og fatahengi. Stórt hol með flísaparketi á gólfi, góðu skápaplássi og útgengi út á sólpall. Tvö herbergi með flísaparketi á gólfi. Stofan og eldhúsið eru í sama rými með góðri lofhæð. Stofan er með flísaparketi og útgengi út á sólpall. Eldhúsið er með flísaparketi á gólfi, viðarinnréttingu og helluborði. Baðherbergi með dúk á gólfi, viðainnréttingu og sturtuklefa.
Geymsla á sólpalli; Tvískipt ca. 6 fm. Nýtt sem geymsla og sturta fyrir heitan pott.
Geymsla undir sólpalli: ca. 4 fm.
Stór sólpallur með girðingu og skjólgirðingu. Heitur pottur.
Lóðin er 5.420 fm leigulóð skógi vaxin með fallegu útsýni..
Möguleiki er að fá hluta af innbúi með í kaupum á eigninni.
Þetta er falleg og vel um gengið hús. Góð aðkoma og næg bílastæði.
Lóðarleiga um kr. 100.000 á ári.
Stutt er til þekktra staða á Suðurlandi, Skálholts, Þingvalla, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Kersins. Stutt er í veiði, sundlaug, golfvöll, íþróttavöll og fallegar gönguleiðir. Akstur frá Reykjavík ca. 1 klst.
Upplýsingar gefa: Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali, s. 893 1485, netfang:
[email protected]Árni Björn Erlingsson, löggiltur fasteignasali, s. 898-0508, netfang:
[email protected]Björgvin Þór Rúnarsson, löggiltur fasteignasali, s. 855-1544, netfang:
[email protected]Vilhjálmur Bjarnason, löggiltur fasteignasali, s. 822-8183, netfang:
[email protected]Hrönn Ingólfsdóttir, löggiltur fasteignasasali, s.
692-3344, netfang:
[email protected]