Hrönn Ingólfsdóttir lgfs. og Fasteignaland kynna í einkasölu: Einstaklega glæsileg og vel skipulögð 4ra herbergja sérhæð í nýlegu húsi við Drangsskarð 10B í Hafnarfirði. Eignin er skráð alls 128,4 fm að stærð og þar af er geymslan 9,9 fm.
Eignin skiptist þannig: Forstofa, tvö baðherbergi, eldhús, stofa og borðstofa. Þrjú góð svefnherbergi ásamt rúmgóðu þvottahúsi. Pallur með heitum potti í vinnslu og getur allt timbur í hann fylgt með. Einstakt útsýni er úr íbúðinni sem er á annarri hæð. Snjóbræðsla í útitröppum, stigapalli og í bílastæði.
Nánari upplýsingar veitir Hrönn Ingólfsdóttir í síma 692 3344 eða [email protected].Nánari lýsing eignar:Forstofa: Gengið er inn um sérinngang í rúmgóða forstofu með góðum fataskáp. Úr forstofu er gengið niður í sameign þar sem er sér geymsla. Einnig er gengið inní sér þvottahús úr forstofu.
Eldhús: Rúmgóð og falleg innrétting með eyju.
Stofa/Borðstofa: Björt og rúmgóð með stórum gluggum og miklu útsýni. Góð lofhæð og innfelld lýsing. Hljóðvistunardúkur í lofti í alrými. Útgengt á suðursvalir. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott með góðum opnum skápum.
Herbergi 1: Rúmgott, parket á gólfi.
Herbergi 2: Rúmgott, parket á gólfi.
Baðherbegi 1: Flísalagt í hólf og gólf. Rúmgóð hvít innrétting, sturta, handklæðaofn og upphengt salerni. Góður gluggi.
Baðherbergi 2: Flísalagt að hluta. Fín innrétting, upphengt salerni.
Þvottahús: Rúmgott með góðum glugga.
Þetta er eign sem vert er að skoða á frábærum stað í Hafnarfirði. Mjög stutt er í skóla og leikskóla. Einstaklega fallegar gönguleiðir eru í nágrenninu.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.