Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík (Austurbær)
Tilboð
Atvinnuhús/ Verslunarhúsnæði
0 herb.
451 m2
Tilboð
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
1963
Brunabótamat
188.450.000
Fasteignamat
114.750.000

Heimir Eðvarðsson lgfs og  Fasteignaland kynnir Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavik.

Heil húseign með byggingarrétti fyrir íbúðir.
Suðurlandsbraut  er 451,6 fermetra verslunar- og skrifstofuhúsnæði á þremur hæðum og með byggingarrétt að þremur hæðum ofan á húsið heimilt er að byggja 5 íbúðir.
Gott og mikið útsýni er af efri hæðum hússins yfir Laugardalinn.
Húsið er byggt árið 1963

Á jarðhæð er um 100 fermetra verslunarhúsnæði með allt að 4,5 metra lofthæð og gólfsíðum verslunargluggum og einnig lager í bakhúsi um 160 fermetrar með um 2,5 metra lofthæð og bílgeng lagerhurð í bakhúsi
2. hæð. er 95,6 fermetrar sem er opið rými.
3. hæð. er 95,6 fermetrar sem skiptist í opið skrifstofurými, auk tveggja skrifstofa og mikil lofthæð er á hæðinni.

Lóðin er 3.736,0 fm. að stærð, frágengin og með malbikuðum bílastæðum, sameiginleg með öðrum eignarhlutum hússins.

Hugmyndir hafa verið í gangi um að byggja 3 hæðir ofaná húsið og endurnýja 2 & 3 hæð og breyta í íbúðir eða alls 5 íbúðir. Hæð 4,5 og 6 myndu líklega hafa svalir í suður og allar íbúðir 2x2m svalir í norður eða lyftuhús. Lyfta yrði í húsinu með opnun beint inní íbúð.
Á lagersvæði væri hægt að inrétta geymslur fyrir íbúðir. Fyrsta hæðin gæti verið þjónusta af ýmsum toga, td. verslun eða veitingahús , nú eða bara að breyta henni í bílahús.
Frumlegur byggingarverktaki verður ekki í vandræðum með að skapa skemmtilegan stað úr þessu öllu

 Nánari uppýsingar um eignina ásamt teikningum er að finna á vefnum: s6.is
 
Upplýsingar gefa: 
Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali, s. 893 1485, netfang: [email protected]



 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.